Dagur félagasamtaka í Vogum laugardaginn

Laugardaginn 28. október verður dagur félagasamtaka haldinn í Vogum. Þar munu félagasamtök taka á móti gestum og gangandi í Tjarnarsal milli kl. 13:00 og 15:00. Fulltrúar félaga kynna starfsemi þeirra og sögu með ýmsum hætti og taka vel á móti nýjum liðsmönnum. Boðið verður uppá veitingar fyrir alla fjölskylduna. Tilvalið að líta inn í leiðinni til eða frá kjörstað en kosið er til alþingis þennan sama dag í Stóru- Vogaskóla.
Hlökkum til að sjá þig.
Félagasamtök í Vogum og frístunda- og menningarfulltrúi Voga.