Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga mun framvegis funda í sal félagsmiðstöðvarinnar við Hafnargötu 17-19.
Fundur verður haldinn í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga, þriðjudaginn 6. nóvember 2007 kl. 18:00 í sal félagsmiðstöðvarinnar við Hafnargötu 17-19.
Dagskrá.1. Fundargerð 22. fundar Skipulags- og bygginganefndar.
2. Fundargerðir 31. og 32. fundar bæjarráðs.
3. Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2007.
4. Samþykkt um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Voga, seinni umræða.
5. Breyting á fulltrúum í nefndum vegna brottflutnings.
6. Fjárfestingarstefna eigin fjár Sveitarfélagsins Voga.
Vogum 2. nóvember 2007.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri