Dagforeldri óskast til starfa

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir starfsmanni til að sinna daggæslu barna í heimahúsi skv. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsi. Mikilvægt er að umsækjandi hafi reynslu af börnum og sæki námskeið til að fá tilheyrandi réttindi eins fljótt og unnt er. Nánari upplýsingar er að finna í ofangreindri reglugerð sem finna má á heimsíðu Sveitarfélagsins Voga.

Nánari upplýsingar veitir Gyða Hjartardóttir félagsmálastjóri eða Ásthildur Guðmundsdóttir félagsráðgjafi hjá félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga í síma 420-7555, gyda@sandgerdi.is, asthildur@sandgerdi.is