Dagforeldrar óskast til starfa.

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir starfsmanni til að sinna daggæslu barna í heimahúsi skv. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsi. Mikilvægt er að umsækjandi hafi reynslu af börnum og sæki námskeið til að fá tilheyrandi réttindi eins fljótt og unnt er. Nánari upplýsingar er að finna í ofangreindri reglugerð sem finna má á heimasíðu Sveitarfélagsins Voga.

Nánari upplýsingar veitir félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga í síma 420-7555, netfang: diana@sandgerdi.is og gudrun@sandgerdi.is