Color Run hlauparar - tilkynning frá Strætó

Color Run hlauparar
hjálpið okkur að halda vögnunum snyrtilegum

The Color Run verður haldið í annað sinn á Íslandi þann 11. júní nk. Hlaupið er litríkt og skemmtilegt þar sem þátttakendur hlaupa í gegnum litapúðurssprengju. Að gefnu tilefni viljum við þó benda á að þátttakendum í hlaupinu sem eru þaktir í litapúðri, er ekki heimilt að nota vagninn þar sem hætta er á að liturinn fari í sætin og í föt annarra farþega. Við biðjum því fólk að gera viðeigandi ráðstafanir eftir hlaupið og virða beiðni okkar. Skemmtið ykkur vel!