Búningar

Föngulegur hópur sundmanna.

Þriðjudaginn 16. nóvember kom saman föngulegur hópur sundmanna úr Þrótti til
að veita viðtöku nýjum æfingagöllum sunddeildarinnar.

 
Eins og sjá má eru þetta glæsilegir gallar sem hæfa glæsilegum krökkum.
Í sunddeildinni eru nú um 60 krakkar sem æfa stíft undir handleiðslu Maríu
Jónu.
Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og fara krakkarnir ekki á mót án
þess að koma heim með verðlaunapeninga í kílóavís!