KYNNINGAFUNDUR
UM NÝJAN BÚSETUKOST FYRIR ELDRI BORGARA
Bæjarstjórn Voga og Búmenn bjóða til fundar þar sem kynntur verður nýr búsetukostur fyrir eldri borgara ásamt þjónustumiðstöð.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 12. maí kl. 17:30 í Tjarnarsal.
Dagskrá
17:30 Skóflustunga tekin á lóðinni (milli Akurgerði og Vogagerði).
18:00 Kynningafundur um verkefnið í Tjarnarsal.
Að fundi loknum verður boðið upp á veitingar.
Bæjarstjóri.