Bruni við Iðndal 2

Í nótt kom upp eldur í andyri aftan við þjónustumiðstöðina við Iðndal 2 þar sem bæjarskrifstofurnar og heilsugæslan eru til húsa, ásamt Sparisjóði Keflavíkur, Snertu og Verslun N1. Sem betur fer urðu engin meiðsl á fólki, en nokkuð tjón varð vegna elds og reyks. Líklega hefur kviknað í sorptunnum út frá flugeldum.

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja réðu niðurlögum eldsins um kl. 6.30 í morgun. 

Þessi atburður minni okkur enn á mikilvægi þess að fara varlega með flugelda og önnur eldfæri.