Breyting á niðurgreiðslum leikskólagjalda

Frá og með 1.janúar 2012 verður sú breyting á niðurgreiðslum leikskólagjalda að þær verða framvegis tekjutengdar en ekki bundnar við hjúskaparstöðu foreldra. Allir foreldrar geta því sótt um niðurgreidd leikskólagjöld í samræmi við tekjuviðmið sem Sveitarfélagið Vogar setur.
 
Nánari upplýsingar um tekjuviðmið og tilhögun umsókna verða birt hér á heimasíðunni innan skamms.