Breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 6. október sl. tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins 2008 - 2028. Tillagan var auglýst frá 2. júní til og með 16. júlí 2022. Vegna athugasemda Skipulagsstofnunar er bætt við iðnaðarsvæði sem hringtákni I-2 vegna deili- og hreinsistöðvar fráveitu norðan Búðatjarnar neðan íbúðarsvæði ÍB-3-1. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins.