Boru- Race 2008

Á dögunum hélt félagsmiðstöðin sitt árlega Boru-Race. Boru-Race er blanda af ratleik og hinum vinsæla raunveruleikaþætti, The Amazing Race. Átta lið skráðu sig til leiks og hlaupu þau útum alla Voga til þess að leysa þrautir og einnig að keppast um það hvaða lið yrði fljótast að leysa þær.

Voru það þær Ólafía, Kristín og Guðbjörg sem voru sigurvegarar þetta árið. Eftir leikinn grilluðum við og buðum uppá gos fyrir alla í 8.-10. bekk. 

Mynd:
Sigurvegarar á leið í mark.