Boltinn byrjar að rúlla í Vogum

Fyrsti heimaleikur sumarsins hjá meistaraflokki Umf. Þróttar í knattspyrnu verður föstudagskvöldið 29. maí á Nesbyggðarvellinum í Vogum þegar lið KFS frá Vestamannaeyjum kemur í heimsókn.
Leikurinn hefst kl. 19:00. Þetta er annar leikur Umf. Þróttar í 3. deildinni í sumar, en liðið tapaði fyrsta leiknum á útivelli gegn Álftanesi í síðustu viku. Allir Þróttarara nær og fjær eru hvattir til að mæta á völlinn og hvetja sína menn til sigurs.

ÁFRAM ÞRÓTTUR!