Bókasafnið opið laugardaginn 24. mars

Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum verður bókasafnið opið milli kl. 13 og 16, laugardaginn 24. mars.

Tilvalið tækifæri til að birgja sig upp af bókum, tímaritum og hljóðbókum fyrir páskafríið!

Vakin er athygli á því að hvert heimili í sveitarfélaginu getur fengið ókeypis bókasafnsskírteini, sem gildir í eitt ár. Um að gera að nýta þetta tækifæri og skoða bókasafnið ykkar og fræðast um starfsemi þess.

Heitt verður á könnunni.

Bókavörður