Bókasafnið lokað í júlí.

Bókasafnið verður lokað frá 2. júlí til 3. ágúst í sumar vegna sumarleyfis bókavarðar. Vakin er athygli á því að lánþegar með gilt skírteini hjá bókasafninu hér í Vogum geta einnig fengið að láni bækur hjá bókasöfnunum í Reykjanesbæ, Grindavík, Garði eða Sandgerði. Viðskiptavinir bókasafnsins eru hvattir til að nýta sér þjónustu þessara bókasafna á meðan lokað verður.

Bókavörður