Biskup Íslands vísiterar í Vogum

Þriðjudaginn 23. apríl mun Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir heimsækja sveitarfélagið Voga. Heimsóknin er hluti af vísitasíu biskups í Kálfatjarnarprestakall. Biskup mun heimsækja nokkrar stofnanir sveitarfélagsins. Dagskrá heimsóknarinnar er sem hér segir:

Kl. 12:00-13:15      Heimsókn Stóru-Vogaskóla sem hefst með mat
Kl. 13:20-13:50      Heimsókn í leikskólann Suðurvelli
Kl. 14:00-15:00      Heimsókn í Álfagerði (eldri borgarar) með helgistund
Kl. 15:00-15:30      Heimsókn á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins Voga
Kl. 15:30-16:00      Heimsókn í íþrótta- og félagsmiðstöð sveitarfélagsins Voga
Kl. 16:15-17:15      Samvera í Kálfatjarnarkirkju/þjónustuhúsi með sóknarnefnd sem endar með helgistund í kirkjunni