BINGÓ í Álfagerði

Fimmtudaginn 15. febrúar ætlar álfagerði og félag eldri borgara í Vogunum að hafa Bingó.
Að þessu sinni stendur það opið öllum sem hafa áhuga en viljum við þó biðja um að börn komi í fylgd fullorðinna.
Yfir 50 vinningar hafa safnast að þessu sinni og fengust með stuðningi/styrk fyrirtækja héðan í Vogunum og Reykjanesbæ.
Hægt er að sjá styrktaraðila og dæmi um vinningana neðst á auglýsingu.
Álfagerði opnar klukkan 16:00, en byrjað verður að spila klukkan 16:30 og er spilað til 18:30 með pásu inn á milli.
Boðið verður upp á kaffi og djús í pásunni en einnig verður sjoppa á staðnum.