Bilun hjá HS veitum

Þriðjudaginn 12. apríl varð bilun hjá HS-veitum er varð til þess að um tíma varð kaldavatnslaust í Vogum.
Bilunina má rekja til höggs sem kom á raforkukerfið og sló út dælum hjá HS-veitum.
Starfsmenn HS-veitna brugðust við eins fljótt og hægt er og eftir reglum sem um það gilda.