Bikarinn í Voga!!!

Öllum vonarstjörnum félagsins er boðið að leiða leikmenn inná völlinn á morgun þegar úrslitaleikur 4. deildar fer fram á Vogabæjarvelli. Hvetjum foreldra til að láta börnin vita tímanlega!

Íslandsmót – 4. deild karla

Úrslitaleikur
Þróttur V – Vængir Júpiters

Laugardagur 12. september kl. 14.00
Vogabæjarvöllur (Unnum hlutkestið og fengum leikinn heim)

Bæði lið hafa tryggt sig í 3. deildina á næsta ári og núna er komið að úrslitaleiknum. Fulltrúar KSÍ verða á leiknum og afhenda bikarinn í leikslok.

Bikarinn í Voga !!!