Barnakór Kálfatjarnarkirkju

Barnakór Kálfatjarnarkirkju verður stofnaður þriðjudaginn 6. október en þá verður fyrsta æfing hans í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla kl. 18-19. Æfingar verða framvegis á þeim tíma.
Kórstjóri verður Elísabet Þórðardóttir nýráðinn organisti við Kálfatjarnarkirkju.
Kórinn er fyrir börn í 4. - 7. bekk (9-12 ára).

Þátttaka er ókeypis.

Skráning er hjá kórstjóra sem gefur frekari upplýsingar á lisath@hotmail.com eða í síma 6614954.