Bæjarstjóranum fært Jólakort

Hingað á bæjarskrifstofurnar kom fríður hópur barna áðan frá Heilsuleikskólanum Suðurvöllum. Þau komu færandi hendi, með fallegt jólakort sem þau gerðu sjálf. Þetta var formleg athöfn þar sem þau afhenntu bæjarstjóranum jólakortið og þegar þau voru búin að því, þá var sungið hástöfum Snjókorn falla.