AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til
kl. 17, 2. desember 2013. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@avs.is og bréflega
á póstfangið AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Háeyri 1, 550 Sauðárkrókur.