Aukin þjónusta Vogastrætó

Föstudaginn 1. mars bætist við ein ferð á dag hjá Vogastrætó. Brottför frá Gamla Pósthúsinu er kl. 18:47, ekið er frá mislægu gatnamótunum til baka kl. 18:52 og komið að Gamla Pósthúsinu kl. 18:57. Þessi ferð er í tengslum við rútuna sem fer frá BSÍ kl. 18:15, og geta því Vogabúar sem taka rútuna kl. 18:15 úr Reykjavík komist alla leið í Voga með þeirri ferð. Tímatöflum verður dreift í öll hús í sveitarfélaginu á næstu dögum.

Tímatafla er tekur gildi 1. mars 2013

Heimasíða SBK