Aukin grenndarlöggæsla í Vogum

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að auka grenndarlöggæslu á Suðurnesjum. Sem lið í þeirri viðleitni hefur verið opnuð hverfisstöð í Vogum í samstarfi við Sveitarfélagið Voga. Magnús Daðason, varðstjóri,  mun vera með fasta viðveru á stöðinni, alla virka daga frá kl. 13:30 til 15:30.

Hverfisstöðin er til húsa íþrótta- og félagsmiðstöðinni og því í nánum tengslum við íþrótta- og frístundastarf í Vogum. 

Markmiðið með hverfislöggæslunni er að mynda tengsl við íbúana og stofnanir sveitarfélagsins og byggja upp traust milli íbúa og lögreglu. Það er gert með því að tryggja upplýsingaflæði og taka fljótt á málum sem koma upp.  Einnig er nauðsynlegt að lögreglan sé sýnileg, taki strax á brotum, fylgist með umferðarhraða, hafi eftirlit með útivistarreglum og svo framvegis.

Með opnun hverfisstöðvarinnar og fastri viðveru lögreglumanns er stigið mjög jákvætt og mikilvægt skref í öryggis og forvarnarmálum í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga og Lögreglustjórinn á Suðurnesjum binda miklar vonir við verkefnið, en það hefur verið unnið í mjög góðri samvinnu allra aðila.

Netfang lögreglunnar í Vogum er vogar@dc.is