Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði 2015

Allir hafa rétt til að sækja um styrki í sjóðinn, sveitarfélög, félagasamtök, einstaklingar og aðrir lögaðilar.

Hlutverk húsafriðunarsjóðs er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja sem hafa menningarsögulegt gildi.
Sjóðnum ber einnig að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum.

Sjóðurinn veitir styrki til:
Viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum.
Viðhalds annarra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
Byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja og miðlun upplýsinga um þær.

Hægt er að skkoða auglýsinguna á vefsíðu Minjastofunar Íslands, sem er hér: http://www.minjastofnun.is/um-stofnunina/frettir/nr/1211