Auglýsingar um breytingar á aðal- og deiliskipulagi

    

 

                                                AUGLÝSING

um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga

1994-2014

 

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga auglýsir skv. 1 mgr. 21 gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að verulegri breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 1994-2014.

Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á göngustígum og stækkun á byggingareitum.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu bæjarins að Iðndal 2, Vogum frá og með þriðjudeginum 4. apríl 2006 til og með 2. maí 2006.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingatillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum  er til 16. maí 2006.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir innan tilgreinds frests telst samþykkur henni.

 

 

Vogum, 4. apríl 2006.

Bæjarstjóri Voga

                                                                           Jóhanna Reynisdóttir

 

 

 

 

 

                                                             

 

 

AUGLÝSING

um breytingu deiliskipulagi í Sveitarfélaginu Vogum

 

Hér með er lýst eftir athugasemdum við breytingu á deiliskipulagi í Sveitarfélaginu Vogum, nánar tiltekið við Akurgerði og Vogagerði.

Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á göngustígum og stækkun byggingareita.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu bæjarins frá  4. apríl 2006, til og með 2. maí 2006.

Athugasemdum við tillöguna skal skila á skrifstofu bæjarirns fyrir 16. maí 2006. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir innan tilgreinds frests telst samþykkur henni.

 

 

 

 

                                                                             Vogar, 4. apríl 2006.

 

Bæjarstjóri Voga

Jóhanna Reynisdóttir

 

 

                                                                                                               

 

 

 

 

 

      

AUGLÝSING

um breytingu á deiliskipulagi í Sveitarfélaginu Vogum

 

Hér með er lýst eftir athugasemdum við breytingu á deiliskipulagi í Sveitarfélaginu Vogum, nánar tiltekið á iðnaðarsvæði við Hraunholt og Heiðarholt.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu bæjarins frá 10. apríl 2006 til og með 8. maí 2006.

Athugasemdum við tillöguna skal skila á skrifstofu bæjarins fyrir 22. maí 2006. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir innan tilgreinds frests telst samþykkur henni.

 

 

Vogum, 5. apríl 2006.

Jóhanna Reynisdóttir, bæjarstjóri