Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 604, 3. júlí 2017


Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Kaldrananeshrepp (Drangsnes)
Sveitarfélagið Skagafjörð (Hofsós)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 160/2018 í Stjórnartíðindum

Sveitarfélagið Árborg (Stokkseyri og Eyrarbakki)
Sandgerðisbær
Sveitarfélagið Vogar
Strandabyggð (Hólmavík)
Blönduósbær (Blönduós)
Fjarðabyggð (Mjóifjörður og Stöðvarfjörður)
Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar.  Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2018.

Fiskistofa, 14. febrúar 2018 .