Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018


Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018

Kaldrananeshrepp (Drangsnes)
Sveitarfélagið Skagafjörð (Hofsós)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu  nr. 160/2018 í Stjórnartíðindum

• Sveitarfélagið Árborg (Stokkseyri og Eyrarbakki)
• Sandgerðisbær
• Sveitarfélagið Vogar
• Strandabyggð (Hólmavík)
• Blönduósbær (Blönduós)
• Fjarðabyggð (Mjóifjörður og Stöðvarfjörður)
• Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2018.

Fiskistofa 14. febrúar 2018