Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa skv. ákvæðum reglugerðar nr. 641/2016 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017. Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í Sveitarfélaginu Vogum sbr. auglýsingu nr. 1102/2016 í Stjórnartíðindum

 

 

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. 

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

 

Umsóknarfrestur er til og með 2. janúar 2017.

 

Fiskistofa 15. desember 2016