Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2010/2011

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 999/2010 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu  nr. 126/2011 í Stjórnartíðindum.

Norðurþing (Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn)
Sveitarfélagið Skagafjörður (Sauðárkrókur, Hofsós)
Sveitarfélagið Vogar

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2011.

Fiskistofa 11. febrúar 2011