Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta


Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016.

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa í eftirfarandi byggðarlögum:

1) Á grundvelli reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 605, 3. júlí 2015
Djúpivogur
2) Auk ofangreindrar reglugerðar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1159/2015 í Stjórnartíðindum:
Norðurþing (Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn) 
3) Fiskistofa auglýsir öðru sinni eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa í neðangreindum byggðarlögum sbr. reglugerð nr. 605/2015 og auglýsingu nr. 1159/2015  (áður sendar umsóknir eru gildar): 

Vogar
Ísafjarðarbær (Ísafjörður)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. 
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2016

Fiskistofa 29. desember 2015