Auglýsing um skipulagslýsingu Sveitarfélaginu Vogum, deiliskipulagsáætlun fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 27. maí 2015, skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/static/files/import//2010, lýsingu fyrir gerð deiliskipulags fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd vegna áforma um lagfæringar á húsakosti alifuglabúsins.
Lýsingin er sett fram í greinargerð og má nálgast hana á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is. Hún liggur einnig frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Iðndal 2,  190 Vogum.
Skriflegum ábendingum við efni lýsingarinnar má skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2,  190 Vogum, eða á netfangið
skrifstofa@vogar.is fyrir 16. júní 2015.

 Lýsing deiliskipulagsáætlunar fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd.

Vogum, 3. júni 2015
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri