Auglýsing um skipulag í Sveitarfélaginu Vogum. Tillaga að deiliskipulagi fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 30. september 2015 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/static/files/import//2010, fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd vegna áforma um lagfæringar á húsakosti alifuglabúsins.
Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með mánudeginum 5. október 2015 til og með mánudagsins 16. nóvember 2015. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en mánudaginn 16. nóvember 2015.


Vogum, 5. október 2015
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri


 
Nesbú, Vatnsleysuströnd - Deiliskipulagstillaga