Auglýsing um skipulag í Sveitarfélaginu Vogum

 


AUGLÝSING
Um skipulag í Sveitarfélaginu Vogum.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 30. mars 2016 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/static/files/import//2010, fyrir  iðnaðarsvæði við Vogabraut vegna breyttrar staðsetningar á fyrirhugaðri súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju sem til stendur að reisa á iðnaðarsvæðinu. Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með föstudeginum 1. apríl 2016 til og með þriðjudagsins 17. maí 2016. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga,  www.vogar.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið
skrifstofa@vogar.is eigi síðar en þriðjudaginn 17. maí 2016.

Iðnaðarsvæði við Vogabraut - Deilisskipulagsbreyting - tillaga

Vogum, 31. mars 2016
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri