Auglýsing um skipulag

 Sveitarfélagið Vogar
Tillaga að deiliskipulagi
fyrir Aragerði 4.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 28. júní 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Aragerði 4 vegna fyrirhugaðar byggingar fjölbýlishúss á tveimur hæðum með 6 íbúðum. Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með fimmtudeginum 6. júlí 2017 til og með fimmtudagsins 17. ágúst 2017. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is/static/files/import/skipulag/skipulag_i_kynningu/skipulag_i_kynningu
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en fimmtudaginn 17. ágúst 2017. Sjá tillögu her: /static/files/import/resources/files/837_arager25c325b0i204.pdf
Vogum, 6. júlí 2017
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri