Auglýsing um nýtt deiliskipulag

Samkvæmt 1.mgr. 25.gr.  skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við deiliskipulagstillögu fyrir Vogagerði 21-23. Um er að ræða tvær lóðir fyrir einbýlishús á einni hæð með nýtingarhlutfall að hámarki 0,4 og hámarkshæð húsa er 5,5 yfir gólfkóta.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu bæjarins frá 22. febrúar 2008 til og með 21. mars 2008.
Athugasemdum við tillöguna skal skila á skrifstofu bæjarins fyrir 4. apríl 2008. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir innan tilgreinds frests telst samþykkur henni.

Vogum, 21. febrúar 2008.
Bæjarstjóri

Hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna hér.

Vogagerði 21- 23