Auglýsing um deiliskipulag í Sveitarfélaginu Vogum.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 16. desember 2015 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir  iðnaðarsvæði við Vogabraut vegna áforma um byggingu súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju. Tillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til hennar um nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með mánudeginum 21. desember 2015 til og með mánudagsins 1. febrúar 2016. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga,  /static/files/import/skipulag/kynning_i_skipulagsmalum/kynning_i_skipulagsmalum
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en mánudaginn 1. febrúar 2016.



Vogum, 21. desember 2015
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri