AUGLÝSING um breytt deiliskipulag Akurgerði, Stóru-Vogaskóli, Vogatjörn, Sveitarfélaginu Vogum.

Með vísan til ákvæða 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga þann 28. apríl, 2011 samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulag á reitnum Akurgerði, Stóru-Vogaskóli, Vogatjörn, Sveitarfélaginu Vogum.

Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 14.04.2011 og felur meðal annars í sér að deiliskipulagssvæðið er stækkað til austurs að Vogagerði norðan Tjarnargötu en minnkað að sunnanverðu. Vestan Vogagerðis kemur ný gata með þremur einbýlishúsalóðum auk þess sem við Vogagerði verður bætt við lóð. Einnig eru gerðar ýmsar leiðréttingar í samræmi við gildandi aðalskipulag.

Uppdráttur að tillögu liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Iðndal, 2, 190 Vogum svo þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Tillöguna að deiliskipulagi er einnig að finna á vef sveitarfélagsins http://vogar.is/Skipulag/Deiliskipulag_i_auglysingu/

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 fimmtudaginn 23. júní, 2011 og skal athugasemdum skilað skriflega til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogum. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

Vogum, 10. maí, 2011
F.h. bæjarstjórnar
Eirný Vals, bæjarstjóri