Auglýsing um breytingu á skipulagi vegna miðbæjarsvæðis

Um er að ræða breytingu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 1994-2014 vegna miðbæjarsvæðis, nýtt deiliskipulag miðbæjarsvæðis, auk tengdra breytinga á deiliskipulagi við Iðndal og iðnaðarsvæði við Heiðarholt.

Hér með er lýst eftir athugasemdum við skipulagstillögurnar.

Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu bæjarins frá 24. júlí 2008 til og með 21. ágúst 2008.
Athugasemdum við tillöguna skal skila á skrifstofu bæjarins fyrir 4. september 2008. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir innan tilgreinds frests telst samþykkur henni.

Jafnframt má finna skipulagstillögurnar á vef sveitarfélagsins undir skipulag í kynningu.

Vogum, 22. júlí 2008.
Bæjarstjóri

Sjá nánar.
Skipulag í kynningu. Miðbæjarsvæði