AUGLÝSING - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Grænaborg

 AUGLÝSING
Um skipulag í Sveitarfélaginu Vogum.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Grænaborg

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 16. maí 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grænuborgarhverfis, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í breytingunni felst m.a. að lóðum verði fjölgað, hámarksstærð og hámarkshæð húsa verði aukin. Tillagan er sett fram á uppdrætti og vísast til hans um nánari upplýsingar.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með miðvikudeginum 6. júní 2018 til og með miðvikudagsins 18. júlí 2018. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga,  www.vogar.is/static/files/import/skipulag/skipulag_i_kynningu/skipulag_i_kynningu.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en miðvikudaginn 18. júlí 2018.

Vogum, 6. júní 2018
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri