AUGLÝSING

Skipulags- og matslýsingar vegna breytingar á
aðalskipulagi 2008-2028 Sveitarfélagsins Voga
 og deiliskipulags fyrir nýtt vatnsból.

Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Sveitarfélagið Vogar til kynningar skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 og deiliskipulags fyrir nýtt vatnsból þéttbýlisins í Vogum.
Lýsingin er sett fram í greinargerð og má nálgast hana á heimasíðu sveitarfélagsins /static/files/import/skipulag/skipulag_i_kynningu/skipulag_i_kynningu  Hún liggur einnig frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Iðndal 2,  190 Vogum.
Skriflegum ábendingum við efni lýsingarinnar má skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2,  190 Vogum, eða á netfangið skrifstofa@vogar.is. Þær skulu berast eigi síðar en 15. desember 2017.


Vogum, 30. nóvember 2017.
F.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri