Atvinnuúrræði fyrir námsmenn

Eftirtalin störf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu sumarið 2011.

Stöður flokkstjóra í vinnuskóla

Flokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhverfis og eigna. Hann stjórnar starfi vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild og verkvit, er uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hafið störf um í lok maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Flokkstjóri skal vera 20 ára eða eldri. Ráðnir verða 3 flokkstjórar og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um.

Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð og störf við sumarnámskeið

Um er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, laugarvörslu og annað tilfallandi. Starfsmaður þarf að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvís og geta unnið undir álagi. Skilyrði er að umsækjandi sé  18 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta hafið störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum. Einnig er leitað að starfsmönnum til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum.

Vinnuskólinn og íþróttamiðstöðin eru tóbakslausir vinnustaðir.
Umsóknarfrestur er til 23. maí 2011.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja

Nánari upplýsingar um störfin veita frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225 og forstöðumaður umhverfis og eigna gsm 893 6983.
Umsókn sendist rafrænt á stefan@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu Sveitarfélagsins.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvarinnar eða á skrifstofu Sveitarfélagsins.

 



Starfsmaður í samstarfsverkefni Skógfells og Sveitarfélagsins Voga

Leitað er að starfsmanni í samstarfsverkefni Skógfells og Sveitarfélagsins Voga. Í boði er starf við ræktun lands og skógar. Umhirða, snyrting, gróðursetning og fleira á reitum Skógfells.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja
Skilyrði er að umsækjandi sé  18 ára eða eldri og hafi bílpróf. Umsækjandi skal vera sjálfstæður, frumkvæður, góður í samstarfi og hafa áhuga á viðfangsefninu. Starfsmaður verður að geta hafið störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu.

Frekari upplýsingar veitir Vignir Friðbjörnsson gsm 8936983, umsóknum skal skilað á netfangið vignir@vogar.is  eða á skrifstofu sveitarfélagsins Iðndal 2 á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 23. maí 2011.