Atvinnuauglýsing vegna forfalla

Frístund
Í Sveitarfélaginu Vogum er starfræktur frístundaskóli fyrir nemendur í 1.-4.bekk. Þar verður nemendum boðið upp á tómstundir ýmiss konar, sem hæfa aldri þeirra og þroska að loknum skóladegi til klukkan 17.

Vegna forfalla vantar umsjónarmann með frístundaskólanum. 
 
 Helstu verkefni og ábyrgð
 • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
•  Leiðbeina börnum í leik og starfi.
• Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
•  Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk grunnskóla.
 Hæfniskröfur
 • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
•  Áhugi á að vinna með börnum.
•  Frumkvæði og sjálfstæði.
•  Færni í samskiptum.

Í boði er hlutastarf, 50% -70%
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.

 Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
   
 Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Bogadóttir  skólastjóri   og Jón Ingi Baldvinsson aðstoðarskólastjóri , Stóru-Vogaskóla  í síma 440-6250.
Umsóknir má senda á     skoli@vogar.is