Atvinnuauglýsing - Frístund

Í Sveitarfélaginu Vogum er starfræktur frístundaskóli fyrir nemendur í 1.-4.bekk. Þar verður nemendum boðið upp á tómstundir ýmiss konar, sem hæfa aldri þeirra og þroska að loknum skóladegi til klukkan 17.

Frístund óskar eftir starfsfólki í frístundaskólann.
 
 
 Helstu verkefni og ábyrgð
•  Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
•  Leiðbeina börnum í leik og starfi.
•  Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
•  Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk grunnskóla. 

 Hæfniskröfur
•  Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
•  Áhugi á að vinna með börnum.
•  Frumkvæði og sjálfstæði.
•  Færni í samskiptum.

Í boði eru hlutastörf, 50% -60%
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.

Umsóknarfrestur er til 17.júní
   
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Bogadóttir skólastjóri og Jón Ingi Baldvinsson aðstoðarskólastjóri, Stóru-Vogaskóla í síma 440-6250.
Umsóknir má senda á skoli@vogar.is