Í Sveitarfélaginu Vogum verður starfrækt frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4.bekk. Þar verður nemendum boðið upp á tómstundir ýmiss konar, sem hæfa aldri þeirra og þroska að loknum skóladegi til klukkan 17.
Frístund óskar eftir starfsfólki á frístundaheimili.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
• Leiðbeina börnum í leik og starfi.
• Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
• Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk grunnskóla.
Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Áhugi á að vinna með börnum.
• Frumkvæði og sjálfstæði.
• Færni í samskiptum.
Í boði eru hlutastörf, 50%
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.
Umsóknarfrestur er til 18.ágúst 2010
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Bogadóttir, skólastjóri Stóru-Vogaskóla, svavaboga@vogar.is eða í síma 440-6250.