Atvinnuauglýsing.

Félagsþjónusta sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerði og Sv. Voga


Starf í stuðningsþjónustu/félagslegri heimaþjónustu

Félagsþjónusta Sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis og Sv. Voga óskar eftir að ráða starfsmann í stuðningsþjónustu (félagslega heimaþjónustu) annars vegar í sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerði og hinsvegar í Sveitarfélagið Voga.

Í starfinu felst m.a. að efla notendur þjónustunnar til sjálfshjálpar og stuðla að því að viðkomandi geti búið sem lengst á einkaheimili sínu.

Helstu verkefni eru:
• Þrif og almenn heimilisstörf
• Innlit og samvera
• Útkeyrsla á heimsendum mat
• Persónulegur stuðningur
• Aðstoð við innkaupaferðir
 
Verkefni félagslegrar heimaþjónustu geta verið breytileg eftir þörfum notenda. Mikilvægt er að starfsmaður hafi áhuga á og ánægju af mannlegum samskiptum. Félagsliðar og einstaklingar með aðra menntun og reynslu sem gagnast í starfi eru sérstaklega hvattir til að sækja um. Laun eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Æskilegt er að umsækjandi sé með bílpróf og þarf að hafa bifreið til afnota.
 
Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018
Umsóknum má skila rafrænt á netfangið una@sandgerdi.is eða bæjarskrifstofuna í Sandgerðisbæ, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði eða bæjarskrifstofuna í Vogum, Iðndal 2.


Frekari upplýsingar veitir Una Björk Kristófersdóttir, félagsráðgjafi, í síma 420-7500.