Atvinnuauglýsing

Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Voga óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna  félagslega heimaþjónustu í Vogum. Í starfinu felst að efla notendur þjónustunnar til sjálfshjálpar og stuðla að því að viðkomandi geti búið sem lengst á einkaheimili sínu með því að aðstoða við heimilishald, persónulega umhirðu og/eða umönnun barna auk þess að veita félagslegan stuðning og hvatningu.
 
 Um er að ræða 50 % starf og geta verkefni verið breytileg eftir þörfum notenda. Mikilvægt er að starfsmaður hafi áhuga á og ánægju af mannlegum samskiptum. Félagsliðar og einstaklingar með aðra menntun og reynslu sem gagnast í starfi eru sérstaklega hvattir til að sækja um.
 
 Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
 
Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2013
Umsóknum má skila rafrænt á netfangið gudrun@sandgerdi.is eða Sandgerðisbæ, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði.
 
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi í síma 420-7555