Atvinna í boði

               

Sveitarfélagið Vogar

 

Atvinna

Skrifstofustarf

 

Laust er til umsóknar starf á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga. Um er að ræða 70-100% starf við afgreiðslu, almenn skrifstofustörf og verkefni tengd bókhaldi.

 

Hæfniskröfur:

·        Verslunar- eða stúdentspróf og/eða reynsla af skrifstofustörfum.

·        Tölvukunnátta er áskilin.

·        Reynsla og þekking á skjalavörslu og bókhaldi er kostur.

·        Frumkvæði og sjálstæði í starfi.

·        Hæfni í mannlegum samskiptum.

 

Umsóknarfrestur er til 29. desember n.k.

 

Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarins.

Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublað hér  og upplýsingar um Sveitarfélagið Voga á heimasíðunni: www.vogar.is

 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða.

 

Nánari upplýsingar  veitir Anna Hulda Friðriksdóttir skrifstofustjóri  í

síma 424-6660.