Athugið vegna veðurs hefur snjómokstri verið hætt í bili

Veður er slæmt í Vogum og á öllum Suðurnesjum sem stendur. Snjómokstri hefur verið hætt í bili, við hefjumst handa um leið og skyggnið batnar. Reykjanesbrautinni hefur verið lokað. Við hvetjum alla til að sýna aðgát og varúð og vera ekki á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til.