Eins og undanfarin ár verður Áramótabrenna í umsjón Björgunarsveitarinnar Skyggnis á gamlárskvöld. Brennan verður á sínum stað norðan íþróttahússins, en aðkeyrsla er frá Vatnsleysustrandarvegi. Vakin er athygli á því að hægt er að leggja við íþróttahúsið og ganga að brennustað. Kveikt verður upp í brennunni kl. 20 á gamlárskvöld.
Björgunarsveitin Skyggnir verður með flugeldamarkað í björgunarsveitarhúsinu við Iðndal 5. Opnunartímar eru eftirfarandi:
Föstudagur 28. des frá kl. 16- 22
Laugardagur 29. des frá kl. 10- 22
Sunnudagur 30. des frá kl. 10- 22
Gamlársdagur frá kl. 10- 16
Björgunarsveitin vill minna fólk að á gæta fyllstu varkárni við meðferð flugeldanna.
Á vefsíðu flugeldasölu björgunarsveitanna www.flugeldar.is má nálgast upplýsingar vöruúrval og öryggisatriði.