Áramótabrennan hefst kl 20;30 á gamlárskvöld og gerum við ráð fyrir áramótagleði, tónlist og góðri stemningu. Brennan verður á sama stað og í fyrra inn á Vatnsleysuströnd, á túninu fyrir neðan Skipholt. Gott aðgengi er að brennunni á bíl og hægt er að leggja bílum t.d. við skemmuna neðan við Skipholt.
Staðsetningin er merkt á myndinni hér fyrir neðan með rauðu X.